Til að leiðrétta þetta vandamál skaltu kaupa hylki með réttu svæði sem samsvarar svæði prentarans eða kaupa hylki sem gildir á heimsvísu.
Fyrsta talan í skilaboðunum á eftir 42 gefur til kynna svæði prentarans.
Önnur talan í skilaboðunum á eftir 42 gefur til kynna svæði hylkisins.
Prentarinn hefur uppgötvað rekstrarvöru eða hlut sem er ekki frá Lexmark sem er uppsettur í prentaranum.
Lexmark prentarinn þinn er hannaður til að virka best með upprunalegum rekstrarvörum og hlutum frá Lexmark. Notkun á rekstrarvörum eða hlutum frá þriðja aðila getur haft áhrif á afköst, áreiðanleika eða endingu prentarans og myndeiningar hans.
Allar vísanir á endingu eru hannaðar til að virka með rekstrarvörum eða hlutum frá Lexmark og geta því gefið ónákvæmar niðurstöður ef rekstrarvörur eða hlutir frá þriðja aðila eru notaðir. Notkun á hlutum myndeiningar umfram ætlaða endingu geta skaðað Lexmark-prentarann þinn eða tengda hluti.
Til að samþykkja þessa áhættu og að halda áfram með notkun á rekstrarvörum eða hlutum frá öðrum aðila í prentaranum, ýttu á og haltu villuboðum á skjá prentarans með tveimur fingrum í 15 sekúndur. Þegar staðfestingargluggi birtist skaltu snerta Halda áfram .
Ef þú vilt ekki samþykkja þessa áhættu, fjarlægðu þá rekstrarvöru eða hlut frá þriðja aðila úr prentaranum þínum, og settu síðan ósvikna rekstrarvöru eða hlut frá Lexmark í staðinn. Varðandi frekari upplýsingar, sjá Nota upprunalega hluti og rekstarvörur frá Lexmark .
Ef prentarinn prentar ekki eftir að villuboð hafa verið hreinsuð, endurstilltu þá teljara notkunar rekstrarvöru.
Frá heimaskjánum, snertu Stillingar > Tæki > Viðhald > Uppsetningarvalmynd > Notkun rekstrarvöru og teljarar .
Veldu hlut eða rekstrarvöru sem þú vilt endurstilla og snertu síðan Start .
Lestu viðvörunarskilaboðin og snertu síðan Halda áfram .
Notaðu tvo fingur og snertu skjáinn í 15 sekúndur til að hreinsa skilaboðin.